ÞRÓUNARFÉLAG GRUNDARTANGA

Í fararbroddi á heimsvísu

Eigendur Þróunarfélags Grundartanga og fyrirtækin sem starfa á Grundartangasvæðinu hafa undirritað viljayfirlýsingu um uppbyggingu græns iðngarðs með hringrásarhugsun á Grundartanga.

Í undirrituninni felst að mótuð verður fyrirmyndar sjálfbærniumgjörð fyrir svæðið og unnið að uppbyggingu hringrásarhagkerfis með bættri fjölnýtingu auðlinda og innviða. Verndari verkefnisins er Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

GRUNDARTANGI GRÆNN IÐNGARÐUR MEÐ HRINGRÁSARHUGSUN

Fréttir og greinar

8. nóvember 2024
Nýlega skrifaði Carbon Iceland undir samning við Norðurál um að taka fyrstu skrefin í að aðlaga fyrirliggjandi tækni við CO2 föngun frá álveri félagsins á Grundartanga. Ætlunin er að nýta þann koltvísýring sem fangaður er til framleiðslu á grænu eldsneyti sem m.a. getur nýst fiskiskipaflotanum og þannig stutt við orkuskipti. Gert er ráð fyrir að CO2 föngunin geti hafist árið 2028. Verkefnið er hluti að samstarfi innlendra- og erlendra tæknifyrirtækja um að fanga þá losun sem kemur frá stóriðju á íslandi en Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur ýtt verkefninu úr vör. Föngunin byggist á búnaði og þekkingu frá Mitsubishi Heavy Industries og Siemens Energy. Verkefnið er í samræmi við uppbyggingu græns iðngarðs á Grundartanga auk þess að vera í takt við stefnu stjórnvalda og sveitarfélaga um þróun í átt að hringrásarhagkerfi og styður við aðgerðaráætlun í loftlagsmálum.
21. ágúst 2024
Styrkur úr Orkustjóðs til uppsetningar varmaveitu á Grundartanga
15. ágúst 2024
Sjálfbærniumgjörð myndar stefnu græns iðngarðs á Grundartanga. Hún inniheldur sameiginlega sýn, markmið og mælikvarða á sviði umhverfismála, félagslegra þátta, stjórnarhátta og hagsældar og byggir á mikilvægisgreiningu fyrir garðinn ásamt viðmiðum Alþjóðabankans og Sameinuðu þjóðanna. Sjálfbærniumgjörð græns iðngarðs á Grundartanga var samþykkt af öllum aðildarfyrirtækjum garðsins árið 2022. Hún er sameiginleg stefnumörkun aðildarfyrirtækja garðsins sem hafa það að leiðarljósi að stuðla að uppbyggingu hringrásarhagkerfis á Grundartanga með bættri fjölnýtingu auðlinda og innviða. Garðurinn er sá fyrsti sinnar tegundar á Íslandi.

Fyrirtæki á svæðinu

Share by: