Björt framtíð Grundartanga
30. ágúst 2021

Það voru góð tíðindi er Norðurál náði nýjum raforkusamningi á dögunum. Samhliða var tilkynnt um 15 milljarða króna viðbótarfjárfestingu á Grundartanga. Mun fyrirtækið byggja nýjan steypuskála til framleiðslu á virðisaukandi sérvöru sem styrkir mjög samkeppnisstöðu þess. Framkvæmdin mun tímabundið skapa meira en 100 störf og önnur 40 framtíðarstörf í kerskála. Það styrkir Grundartanga enn frekar sem öflugt atvinnusvæði.

Norðurál er eitt af 20 stórum og smáum iðn- og þjónustufyrirtækjum á Grundartanga. Á svæðinu sækja um 1.100 manns atvinnu og að auki má rekja önnur 2.100 störf til rekstursins. Þetta samfélag fyrirtækja er langstærstu vinnuveitendur Hvalfjarðarsveitar og Akraness. Tvö stærstu fyrirtækin, Norðurál og Elkem, greiða í laun og þjónustu um 20 milljarða á ári til samfélagsins.

Þetta öfluga atvinnusvæði Grundartanga hafa fyrirtæki og sveitarfélög byggt upp sameiginlega. Til tryggingar á framþróun svæðisins enn frekar var Þróunarfélag Grundartanga stofnað 2016. Að því standa Hvalfjarðarsveit, Borgarbyggð, Skorradalshreppur, Akraneskaupstaður, Reykjavíkurborg og Faxaflóahafnir. Félaginu er ætlað að sameina krafta sveitarfélaganna, Faxaflóahafna og fyrirtækja til að mynda eitt öflugt atvinnusóknarsvæði og þróa nýja vaxtarmöguleika.

Grænt iðn- og atvinnusvæði

Félagið hefur staðið fyrir fjölbreyttum þróunar- og framfaramálum. Þar má nefna skoðun nýrra umhverfisvænna orkukosta, orkuendurvinnslu, hitaveitu og framleiðslu nýrra orkugjafa á borð við rafeldsneyti. Þá hafa ylrækt og fiskeldi verið skoðuð. Markmiðið er að fullnýta virðiskeðju framleiðslunnar, forðast sóun verðmæta og byggja upp grænna iðn- og atvinnusvæði í hringrásarhagkerfi í anda sjálfbærnimarkmiða Sameinuðu þjóðanna.

Ráðist hefur verið í skógrækt með „grænum trefli“ við Grundartanga, unnið að betri tengingu við umhverfisvænar almenningssamgöngur, og kynning efld á svæðinu. Að auki hefur félagið hvatt til samstarfs um auknar umhverfisrannsóknir og umhverfisvöktun. Fyrir er Hvalfjörður líklega best vaktaða svæði landsins sem tekur til um 100 mæliþátta í lofti, sjó og ferskvatni, húsdýrum og gróðri. Vöktunin er framkvæmd af óháðum aðilum og er hluti mælingannaaðgengilegur í rauntíma á vef Umhverfisstofnunar.

Nýsköpunar- og þróunarklasi

Þróunarfélagið byggir á sýn um uppbyggingu nýsköpunar- og þróunarklasa á Grundartanga. Þar verður fjölbreytt starfsemi ólíkra fyrirtækja, stofnana og sem tengist svæðinu, til umbóta, samstarfs og þróunar. Metnaðurinn liggur í sjálfbærri verðmætasköpun, lágmörkun vistspors og bættrar umhverfisverndar.

Rafeldsneyti og hitaveita

Tvö þróunarverkefni undir merkjum klasans ber að nefna:

Nú í sumar kynnti félagið vandaða skýrslu um möguleika á framleiðslu rafeldsneytis, en það er umhverfisvænt eldsneyti sem byggir á þekktri tækni um framleiðslu vetnis með endurnýjanlegri raforku og glatvarma frá Elkem, ásamt því að nýta koldíoxíð sem þegar er til staðar í vistkerfi svæðisins. Þannig verði dregið verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda, orkuskipti efld og stuðlað að kröftugri nýsköpun. Með nýtingu þess mikla varma sem verður til í starfsemi á Grundartanga væri mögulegt að byggja upp hitaveitu fyrir svæðið og nágrenni þess. Nú er unnið að undirbúningi og rannsóknum á slíkri hitaveitu. Takist samningar um verkefnið og tæknilegar áskoranir leystar er fyrir séð að hitaveitan gæti tekið til starfa á næstu árum.

Þróunarfélagið byggir á þeirri trú að jákvæður ábati reksturs og fjárfestinga styrki samkeppnishæfni fyrirtækja á svæðinu. Hann skapar öruggara atvinnuumhverfi, styður við bætta þjónustu sveitarfélaga svæðisins og skapar aukið mótvægi við loftslagsbreytingar. Það er vegferð sjálfbærni fyrirtækja og samfélags. Því er sóknarhugur í þeim sem standa að uppbyggingu atvinnusvæðisins á Grundartanga í Hvalfjarðarsveit.

Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 30. ágúst 2021.

Eftir Björgvin Helgason og Ólaf Adolfsson.
Björgvin er oddviti Hvalfjarðarsveitar og Ólafur er bæjarfulltrúiá Akranesi og formaður Þróunarfélags Grundartanga.

24. janúar 2025
Aurora fiskeldi og EFLA munu halda kynningarfund á Hótel Laxárbakka í Hvalfjarðarsveit þriðjudaginn 4.febrúar n.k. kl. 20:00. Kynning á matsáætlun er hluti af umhverfismatsferli sem er í vinnslu og mikilvægur liður í að hagaðilar og almenningur hafi vettvang til að kynna sér framkvæmdina og koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Dagskrá kynningarinnar verður eftirfarandi: 1. Aðstandendur félagsins munu kynna framkvæmdina 2. EFLA mun kynna matsáætlun framkvæmdarinnar og helstu áherslur í komandi umhverfismati 3. Spurningar og svör Frekar eru upplýsingar um verkefnið: Skipulagsgáttin Almenningur og hagaðilar eru hvattir til að mæta
16. janúar 2025
Árið 2023 tóku gildi lög nr. 25/2023 um sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu og flokkunarkerfi fyrir sjálfbærar fjárfestingar en með gildistöku laganna voru m.a. ákvæði flokkanareglugerðar ESB (e. EU Taxonomy) innleidd í íslenskan rétt. Markmið reglugerðarinnar er að auka gangsæi er kemur að ófjárhagslegum upplýsingum fyrirtækja og þannig stýra fjármagni í átt að umhverfislega sjálfbærari atvinnustarfsemi. Reglugerðin leggur sérstaka áherslu á sex umhverfismarkmið en meðal þeirra eru mildun loftlagsbreytinga og umbreyting yfir í hringrásarhagkerfi. Til þess að ná markmiðum Íslands um sjálfbæra þróun og samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda þarf að leita leiða til að auka sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda. Markmið Þróunarfélagsins er að þróa grænan iðngarð með hringrásarhugsun að leiðarljósi og gefur það því augaleið að markmið flokkunarreglugerðarinnar styðja við þróun Grundartangasvæðisins. Á svæðinu má finna ýmiskonar starfsemi sem hefur verið skilgreind í umræddri reglugerð og gæti því, ef hún uppfyllir tæknileg matsviðmið, talist umhverfislega sjálfbær samkvæmt kröfum reglugerðarinnar. Fyrirtæki á Grundartangasvæðinu hafa nú þegar lagt í þá vegferð að greina umræddar kröfur og halda þannig áfram að vera leiðandi í íslensku atvinnulífi er kemur að umhverfismálum, félagslegum þáttum og stjórnarháttum.
8. nóvember 2024
Nýlega skrifaði Carbon Iceland undir samning við Norðurál um að taka fyrstu skrefin í að aðlaga fyrirliggjandi tækni við CO2 föngun frá álveri félagsins á Grundartanga. Ætlunin er að nýta þann koltvísýring sem fangaður er til framleiðslu á grænu eldsneyti sem m.a. getur nýst fiskiskipaflotanum og þannig stutt við orkuskipti. Gert er ráð fyrir að CO2 föngunin geti hafist árið 2028. Verkefnið er hluti að samstarfi innlendra- og erlendra tæknifyrirtækja um að fanga þá losun sem kemur frá stóriðju á íslandi en Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur ýtt verkefninu úr vör. Föngunin byggist á búnaði og þekkingu frá Mitsubishi Heavy Industries og Siemens Energy. Verkefnið er í samræmi við uppbyggingu græns iðngarðs á Grundartanga auk þess að vera í takt við stefnu stjórnvalda og sveitarfélaga um þróun í átt að hringrásarhagkerfi og styður við aðgerðaráætlun í loftlagsmálum.
Fleiri færslur

Share by: