Nýting Carbfix tækni á Grundartanga
9. júní 2021

Á myndinni: Álfheiður Ágústsdóttir forstjóri Elkem, Edda Sif Aradóttir forstjóri Carbfix, Þórdís Kolbrún Reykjafjörð Gylfadóttir ráðherra og Ólafur Adolfsson stjórnarformaður Þróunarfélags Grundartanga

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, var viðstödd þegar Carbfix ohf, Þróunarfélag Grundartanga og Elkem Ísland undirrituðu viljayfirlýsingu um samstarf þann 9. júní 2021. Verkefnið felur í sér að meta hagkvæmni þess fyrir Elkem að nýta Carbfix tækni til að draga úr losun koltvísýrings og gera nauðsynlegar ráðstafanir til að samræma og hrinda verkefninu í framkvæmd. Carbfix líkir eftir og hraðar náttúrulegum ferlum þar sem CO2 er fangað og bundið í berg með það að markmiði að minnka losun koltvísýrings út í umhverfið.
24. janúar 2025
Aurora fiskeldi og EFLA munu halda kynningarfund á Hótel Laxárbakka í Hvalfjarðarsveit þriðjudaginn 4.febrúar n.k. kl. 20:00. Kynning á matsáætlun er hluti af umhverfismatsferli sem er í vinnslu og mikilvægur liður í að hagaðilar og almenningur hafi vettvang til að kynna sér framkvæmdina og koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Dagskrá kynningarinnar verður eftirfarandi: 1. Aðstandendur félagsins munu kynna framkvæmdina 2. EFLA mun kynna matsáætlun framkvæmdarinnar og helstu áherslur í komandi umhverfismati 3. Spurningar og svör Frekar eru upplýsingar um verkefnið: Skipulagsgáttin Almenningur og hagaðilar eru hvattir til að mæta
16. janúar 2025
Árið 2023 tóku gildi lög nr. 25/2023 um sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu og flokkunarkerfi fyrir sjálfbærar fjárfestingar en með gildistöku laganna voru m.a. ákvæði flokkanareglugerðar ESB (e. EU Taxonomy) innleidd í íslenskan rétt. Markmið reglugerðarinnar er að auka gangsæi er kemur að ófjárhagslegum upplýsingum fyrirtækja og þannig stýra fjármagni í átt að umhverfislega sjálfbærari atvinnustarfsemi. Reglugerðin leggur sérstaka áherslu á sex umhverfismarkmið en meðal þeirra eru mildun loftlagsbreytinga og umbreyting yfir í hringrásarhagkerfi. Til þess að ná markmiðum Íslands um sjálfbæra þróun og samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda þarf að leita leiða til að auka sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda. Markmið Þróunarfélagsins er að þróa grænan iðngarð með hringrásarhugsun að leiðarljósi og gefur það því augaleið að markmið flokkunarreglugerðarinnar styðja við þróun Grundartangasvæðisins. Á svæðinu má finna ýmiskonar starfsemi sem hefur verið skilgreind í umræddri reglugerð og gæti því, ef hún uppfyllir tæknileg matsviðmið, talist umhverfislega sjálfbær samkvæmt kröfum reglugerðarinnar. Fyrirtæki á Grundartangasvæðinu hafa nú þegar lagt í þá vegferð að greina umræddar kröfur og halda þannig áfram að vera leiðandi í íslensku atvinnulífi er kemur að umhverfismálum, félagslegum þáttum og stjórnarháttum.
8. nóvember 2024
Nýlega skrifaði Carbon Iceland undir samning við Norðurál um að taka fyrstu skrefin í að aðlaga fyrirliggjandi tækni við CO2 föngun frá álveri félagsins á Grundartanga. Ætlunin er að nýta þann koltvísýring sem fangaður er til framleiðslu á grænu eldsneyti sem m.a. getur nýst fiskiskipaflotanum og þannig stutt við orkuskipti. Gert er ráð fyrir að CO2 föngunin geti hafist árið 2028. Verkefnið er hluti að samstarfi innlendra- og erlendra tæknifyrirtækja um að fanga þá losun sem kemur frá stóriðju á íslandi en Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur ýtt verkefninu úr vör. Föngunin byggist á búnaði og þekkingu frá Mitsubishi Heavy Industries og Siemens Energy. Verkefnið er í samræmi við uppbyggingu græns iðngarðs á Grundartanga auk þess að vera í takt við stefnu stjórnvalda og sveitarfélaga um þróun í átt að hringrásarhagkerfi og styður við aðgerðaráætlun í loftlagsmálum.
Fleiri færslur

Share by: